Icelandic(IS)English (United Kingdom)
DAVÍÐSGJÁ

Davíðsgjá er í norðaustanverðu Þingvallavatni. Gjáin er úti í vatninu sjálfu, og erfitt er að finna hana ef menn eru ekki kunnugir staðháttum. Gjáin er frekar grunn næst landi, en ef menn synda út með henni töluverða leið út í vatn, þá er hún hreint út sagt STÓRKOSTLEG! Brúnin á gjánni er þar á um 10 metra dýpi, en botnin á um 30 metrum, og gjáin ekki breiðari en 1 til 2 metra.

Þarna er hægt að kafa undir steina sem hafa fests í gjánni. Gott er að hafa Scooter þegar kafað er í gjánni. Þar sem gjáin er næst landi er mjög gaman að kafa og hentar sá staður vel byrjendum, skyggnið þar er frábært þegar maður er komin niður fyrir kuldaskilin og þar er gjáin mjög breið og falleg. Á sólríkum dögum myndast afar fallegur blámi sem er hvergi sjáanlegur á þurru landi.