HVÍTANES
Hvítanes er gömul aðstaða frá styrjaldarárunum fyrir kafbáta. Dýpið er allt að 15 metrum. Botninn þarna er eintómur leir og er fljótur að gruggast. Leirinn gerir það þó að verkum að menn hafa verið að finna hverskyns muni frá stríðsárunum, bæði gosflöskur skothylki og hverskyna annað dót. Fyrir þá sem hafa gaman af sögunni geta rótað þarna í leirnum svo lengi sem loft leyfir og hugsanlega koma upp með einhverjar skemmtilegar söguminjar.
Best er að kafa þarna á veturna í stillu þegar lítið hefur verið um leysingar.


