KÁRASTAÐIR
Kárastaðir er einnig áhugaverður staður að kafa á, en um er að ræða tvær gjár þar sem ligga alveg við landið svo stutt er að synda út í þær. Skyggnið þarna er líkara því sem gerist í sjónum og er fljótt að tapast ef margir eru að kafa þarna í einu. Gaman er að kafa aðra gjánna út og hina til baka. Einnig er stór og flottur klettavegur þarna sem hægt er að klifra í. Hægt er að sjá mynd af Kárastaðagjánum á kofun.is.
Einnig er gamall álbátur þarna á botninum og gaman er að leika sér með lyftipoka og ná honum upp og færa hann úr stað.


