Icelandic(IS)English (United Kingdom)
NIKULÁSARGJÁ (PENINGAGJÁ)

Nikulásargjá er mjög fallegur köfunarstaður en hægt er að synda inn með gjánni og er mesta dýpi þar um 20 metrar. Á smá spotta er mjög mikill straumur í gjánni þar sem maður þarf að synda yfir smá grynningar og mjög gaman að finna afl vatnsins þó svo að maður haldi að um lygna gjá sé að ræða.

Þegar maður syndir inn gjánna að þá eru háir klettaveggir á báða vegu og er landslagið þar mjög tignarlegt.

Því miður er bannað samkvæmt þjóðgarðslögum að kafa í Nikulásargjá.