SIGURJÓN
Sigurjón er gamalt skip sem var var gefið Slysavarnafélaginu og Landhelgisgæslunni sérstaklega til að sökkva því undir æfingar. Sigurjón liggur uppréttur á 25 metra dýpi, á góðum degi er þetta flottur köfunarstaður og gaman að kafa þarna, en því miður er það svo að skyggni er ekki alltaf með besti móti á þessum stað. Sigurjón er aðeins aðgengilegur með bát.
SKFÍ hefur mikið farið í ferðir í Sigurjón með björgunarsveitunum. Kafarar sem hugsa sér að kafa í Sigurjón verða að vera með ADVANCED réttindi.


