Hjá köfunarskólanum SCUBA ICELAND eru í boði fjöldi byrjendanámskeiða og framhaldsnámskeiða. Námskeiðin eru í boði allt árið um kring og tilvalið að panta prufutíma án allra skuldbindinga og halda svo áfram ef áhugi er fyrir hendi.
Scuba Iceland hefur eingöngu íslenska kennara og leiðsögumenn í sinni þjónustu.
AF HVERJU ÆTTIR ÞÚ AÐ LÆRA HJÁ KÖFUNARSKÓLA SCUBA ICELAND:
- Fagmannleg og persónuleg þjónusta
- Einn reyndasti köfunarkennari á Íslandi
- Allar kennslukafanir í Þingvallavatni og Silfru, einum flottasta köfunarstað í heimi
- Litlir hópar - betri kennsla
- Kennslugögn og skírteini ávallt afhent á réttum tíma
- Góður búnaður
- Öll áhersla á öryggi en líka að hafa gaman
- Allir kennarar eru íslenskir, en reynsla okkar er sú að það skiptir mjög miklu máli við kennslu.
- Allir okkar leiðsögumenn eru íslenskir.
NÁMSKEIÐ Í BOÐI:

- PADI OPEN WATER DIVER - Grunnnámskeið í köfun
- PADI ADVANCED DIVER - Framhaldsnámskeið í köfun
- RESCUE DIVER - Björgunarnámskeið í köfun
- PADI MASTER SCUBA DIVER - Toppurinn í sportköfun
- PADI SPECIALTY NÁMSKEIÐ - Sérnámskeið
- PADI DIVE MASTER - Fyrsta fagstigið í köfun
FYRIRTÆKI OG HÓPAR
Köfun og snorkel ferðir fyrir fyrirtækja hópa. Tilvalið fyrir samstarfsfélaga eða vinahópa sem vilja takast á við erfiða en skemmtilega reynslu og prófa eitthvað nýtt. Sérsniðið að þörfum hvers hóps fyrir sig. Fagmannleg og persónuleg þjónusta með áherslu á skemmtun og öryggi.
Möguleiki á að blanda öðrum þrautum saman við köfun eða snorkel. Í leiðbeinendahóp SCUBA ICELAND eru starfsmenn sem hafa víðtæka reynslu sem kafarar, lögreglumenn og skyndihjálparleiðbeinendur.
Ef þú vilt gera eitthvað nýtt með þínu fólki hafðu þá samband við SCUBA ICELAND og við finnum lausn fyrir þinn hóp!











