Icelandic(IS)English (United Kingdom)
EL GRILLO

El Grillo

El Grillo er flak sem staðsett er á Seyðisfirði. Flakið er með flottustu köfunum á Íslandi, þó ekki væri nema eingöngu vegna stærðar skipsins.

Skipið liggur nokkuð djúpt, en það eru 27 metrar niður á skipið, vélarþilfarið er á um 30 metrum og botninn er á 40-45 metrum. Skipinu var sökkt eftir að það hafði lent í árás Þjóðverja, en það náðist þó að sigla inn Seyðisfjörðinn þar sem tekin var ákvörðun um að sökkva skipinu.

Þessi köfun er eingöngu á færi þeirra sem hafa kafað mikið og eru með ADVANCED réttindi eða meira.

Nauðsynlegt er að fara með einhverjum sem er kunngur flakinu ef kafa á í skipið.


PADI köfunarnámskeið

Kíktu á þau köfunarnámskeið sem eru í boði..

Og mörg fleiri...