Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Í boði eru fjöldi byrjenda námskeiða og framhaldsnámskeið.

Námskeiðin eru í boði allt árið um kring og tilvalið að panta prufutíma án allra skuldbindinga og halda svo áfram ef áhugi er fyrir hendi.

 

Panta prufutíma...

PADI Open Water Diver
PADI OPEN WATER DIVER

Fyrsta þrepið í köfunarkennslu, farið er yfir öll grunnatriði sem þarf að kunna til að kafa. Kennsla er bæði verkleg og bókleg.

Verklegt:

Eitt skipti í sundlaug og fjórar til fimm kafanir í sjó eða vatn. Farið yfir undirstöðuatriði í meðferð og notkun búnaðar þ.m.t. þurrbúnings.

Bóklegt: Fyrirlestur, bókarlestur og köfunarmyndband. Í lokin er tekið skriflegt próf og gefið út alþjóðlegt skírteini sem veitir nauðsynleg réttindi til köfunar niður á 18 metra dýpi.

Nauðsynlegt námskeið fyrir þá sem vilja getað kafað erlendis.

PADI OPEN WATER DIVER skírteini veitir handhafa þess réttindi sem þekkt eru um allan heim. Þeir sem hafa slík réttindi geta fengið leigðan búnað til köfunar hvar sem er í heiminum þegar þeir eru að ferðast. Talsvert er um að fólk lærir köfun hjá SCUBA ICELAND til að geta notið þess að kafa erlendis.

Verð: kr. 85.000,-
Einnig innfalið:
  • Námsbækur til eignar
  • Leiga á búnaði
  • Aðgangur að sundlaug
  • Alþjóðlegt skírteini, sem veitir réttindi til að kafa niður á 18 metra.
  • Alþjóðlegt skírteini í þurrköfun (Dry suit Diver speciality). Aukakostnaður 3.000 kr.

Pantanir...

PADI Advanced Diver
PADI ADVANCED DIVER

Framhaldsnámskeið þar sem þú öðlast:

  • Meiri reynslu sem kafari undir leiðsögn kennara
  • Réttindi niður á 30 metra
  • Reynslu í næturköfunar
  • Reynslu í notkun áttavita

Að loknu grunnnámskeiði er tilvalið að fara á framhaldsnámskeið til þess að öðlast aðeins meiri reynslu í höndum góðs kennara. Til að verða góður kafari er nauðsynlegt að ná sér í mikla reynslu ásamt því að sækja námskeið.

Á námskeiðinu er kennt ýmislegt sem nýtist manni vel. Sérstök áhersla er á tæknilega hluti eins og notkun áttavita og val á köfunarstöðun. Þetta forðar mönnum frá löngu og þreytandi sundi á yfirborðinu. Einnig er á öruggan hátt farið í djúpkafanir allt niður að 30 metrum. Að lokum er farið í næturköfun en næturköfun getur verið mjög spennandi og oft meira spennandi en köfun á daginn en þá sjást oft ýmis dýr sem láta ekki sjá sig í dagsljósinu.

Verð: kr. 65.000,-


Pantanir...

PADI Rescue Diver
PADI RESCUE DIVER

Björgunarnámskeið - Frábært námskeið fyrir þá sem taka köfun alvarlega.

Þú lærir:

  • 12 æfingar þar sem þú öðlast þekking til að geta bjargað sjálfum þér og félögum úr háska ef eitthvað bjátar á.
  • Skyndihjálp og endurlífgun.

Til að fara á björgunarkafara námskeið þarf nemandi að vera með gilt köfunarskírteini og talsverða reynslu í köfun.
Að námsskeiði loknu hafa nemendur öðlast færni til að takast á við erfiðar aðstæður sem geta komið upp í köfun. Færni sem getur gert gæfumuninn við slíkar aðstæður.

Nauðsynlegt námskeið fyrir áhugasama kafara sem vilja hafa allt á hreinu.
Nemendur eru fullir sjálfstrausts og enn áhugasamari um að gera köfunina sem allra öruggasta fyrir alla aðila.
Hjá SCUBA ICELAND færð þú einnig skyndihjálparskírteini frá Rauða Kross Íslands.

Verð: kr. 70.000,-

Pantanir...
PADI Master Scuba DiverPADI MASTER SCUBA DIVER

Toppurinn í sportköfun

Hvað þarf:

  • PADI Advanced Open Water Diver skírteini
  • PADI Rescue Diver skírteini

Til að fá réttindi sem PADI MASTER SCUBA DIVER þarf að klára 5 sérnámskeið. Sjá lista yfir sérnámskeið

Hægt er að nýta þau sérnámskeið sem kafari er búin að taka áður eða taka öll 5 á námskeiðinu.

Verð: Frá kr. 15.000 - 35.000 hvert sérnámskeið eða heildarpakki (5 sérnámskeið) 100.000 kr.

Pantanir...
PADI Speciality Course
PADI SPECIALITY COURSE

SCUBA ICELAND býður upp á 11 sérnámskeið í köfun þar sem allir geta fundið námskeið við sitt hæfi. Þau eru kjörin til að bæta við þá þekkingu sem fyrir er eða hreinlega til að kynnast nýjum hliðum á þessu skemmtilega sporti.

PADI sérnámskeið:
  • Dry Suit Diver – köfun í þurrbúning.
  • Underwater Naturalist – kennsla í að umgangast betur náttúruna neðansjávar og njóta betur þess sem hún hefur upp á að bjóða.
  • Enriched Air Diver (NITROX) 21% -40% - notkun á lofti sem hefur hærri súrefnisprósentu svokölluðu “NITROX”. Með notkun á slíku lofti nær kafari lengri botntíma.
  • Wreck Diver – köfun í skipsflök.
  • Search and Recovery Diver – leit og björgun í vatni.
  • Boat Diver – mikilvæg kennsla öryggisatriðum varðandi köfun út frá bátum.
  • Underwater Navigator – áttavita og náttúruköfun. Kennsla í hvernig þekkja á kennimerki neðansjávar.
  • Night Diver – mikilvæg öryggisatriði í næturköfun.
  • Deep Diver – djúp köfun, veitir réttindi til köfunar niður á 40 metra.
  • Peak Performance Buoyancy Diver – kennsla til að ná fullkomni stjórn á jafnvægi köfun. Tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga á ljósmyndun í kafi.
  • Diving Propulsion Vehicle – notkun á véldrifnum kafbát – “scooter” í köfun.
Verð: frá kr. 20.000,-50.000,-

Pantanir...
PADI Divemaster
PADI DIVEMASTER

Fyrsta fagstigið í köfun.

 

 

 

Þú öðlast:

  • Dýpri skilning á öllu sem við kemur köfun s.s. áhrifum köfunar á líkamann og tæknilegum atriðum í köfun.
  • Réttindi til að stjórna köfunarferðum með ferðamenn, neðansjávarleiðsögumaður.
  • Réttindi til að aðstoða kennara við kennslu í sportköfun.

DiveMaster kafari er fagmaður í köfun.

Verð: 110.000,-


Pantanir...