Icelandic(IS)English (United Kingdom)
HVAÐ STENDUR PADI FYRIR?

PADI stendur fyrir Professional Association of Diving Instructors. PADI eru langstærstu köfunarsamtök í heiminum. Mikil og góð reynsla er komin á þetta kerfi sem gerir það að verkum að það er eins vinsælt og raun er á.

HVERSU LANGAN TÍMA TEKUR AÐ LÆRA AÐ KAFA?

Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt, það er það skemmtilega við köfun að maður getur alltaf verið að bæta við sig þekkingu og reynslu. En venjulega má ætla að það fari um 60 klst í grunnnámskeiðið. Það er nokkuð mikið undir nemandanum sjálfum komið hversu langan tíma þetta tekur. Það þarf að gefa sér tíma til að gera þetta vel. En venjulega er þetta um 2-4 vikur með öllu. En um er að ræða bóklegan tíma, verklegt í sundlaug og verklegt í sjó eða vatni.

GETA ALLIR LÆRT AÐ KAFA?

Lang flestir eiga ekki í neinum vandræðum með að læra að kafa. En því miður eru til þeir sem ættu ekki að stunda köfun, t.d. þeir sem hafa átt við öndunar- eða hjartasjúkdóma að etja. Í byrjun námskeiðs þarf að fylla út spurningablað er varðar heilsu manna, og ef fólk uppfyllir þær kröfur að þá er ekki til setunnar boðið og hægt að byrja að bleyta í sér. Það má segja að um 90% allra geta lært að kafa, fólk á öllum aldri. Hafir þú einhverjar efasemdir varðandi líkamlega hæfni þína til köfunar, skaltu hafa samband við lækni áður en haldið er af stað.

ER ÞETTA SÚREFNI SEM ANDAÐ ER AÐ SÉR?

Já og nei, þetta er í rauninni bara andrúmsloftið í kringum okkur, þ.e.a.s. 21% súrefni og 79% nitur. Ef súrefnismagnið er of mikið að þá getur það orðið eitrað.

En hægt er að taka sérstök námskeið NITROX, þar sem súrefnismagnið getur farið upp í allt að 40% sem gerir það að verkum að botntími eykst innan ákveðinna dýptarmarka.

HVERSU LENGI DUGIR LOFTIÐ Í KÚTNUM?

Það er fer eftir mörgum þáttum, t.d. hveru djúpt og hversu lengi maður er að kafa, einnig fer það eftir reynslu og líkamsbyggingu. Það er oft sagt í gamni innan sportköfunarinnar að kvenfólk framleiði loft í kafi. Kvenfólk er oft með mikið betri nýtingu á loftinu, þær eru svo hagsýnar.

HVERSU GAMALL ÞARF MAÐUR AÐ VERA?

Samkvæmt PADI kerfinu að þá þarf maður að vera orðinn 12 ára, en sökum aðstæðna hér á Íslandi, þ.e. að það þarf mikið meiri búnað sökum kuldans, að þá er það mat kennara, hvort nemandinn hafinn nógan styrk og þroska til að takast við köfun. Ef um er að ræða einstaklinga sem eru undir 18 ára aldri að þá þarf að sjálfsögðu samþykki foreldra. Endilega verið bara í sambandi.

Til eru prógröm hjá PADI eins og Bubblemaker og Seal Team sem eru hönnuð fyrir börn undir 12 ára aldri.

ER HÆGT AÐ LEIGJA BÚNAÐ?

Á Íslandi hefur það því miður ekki verið hægt enn sem komið er nema þá þegar fólk er á námskeiði. Enda er líka mælt með því að fólk sé með sinn eigin búnað sem það þekkir vel.

FÆR MAÐUR EINHVER RÉTTINDI AÐ NÁMSKEIÐI LOKNU?

Að loknum öllum námskeiðum fá nemendur afhent alþjóðlegt skírteini, sem gerir það að verkum að hægt er að leigja sér búnað hvar sem er í heiminum til þess að fara að kafa. Einnig veita skírteinin aðgang að ákveðnum köfunarstöðum eins og t.d. flaki á 30 metrum en þá þarf maður að vera með Advanced skírteini.

HVERSU MIKIÐ KOSTAR BÚNAÐUR TIL ÞESS AÐ FARA AÐ KAFA?

Það fer eftir því hvort keypt er notað eða nýtt, best er að sjálfsögðu að kaupa nýjan búnað sem kostar u.þ.b. 250 þús. kr., en ef keyptur er notaður búnaður þá er hægt að finna búnað frá 100 þús. kr. Við getum aðstoðað við val og kaup á búnaði

ER EITTHVAÐ FÉLAG SEM STENDUR FYRIR KÖFUNARFERÐUM?

Til eru tvö félag, það er annarsvegar Sportkafarafélag Íslands og hinsvegar kafarinn.is. Bæði þessi félög standa fyrir félagsferðum. SKFÍ er eingöngu með félagsferðir innanlands og er stærsti félagsskapur kafara hér á landi.
Kafarinn.is hefur sérhæft sig í ferðum erlendis t.d. í Rauða hafið.

Við komum til með að skipuleggja köfunarferðir erlendis.