PADI ADVANCED DIVER
Framhaldsnámskeið þar sem þú öðlast:
- Meiri reynslu sem kafari undir leiðsögn kennara
- Réttindi niður á 30 metra
- Reynslu í næturköfunar
- Reynslu í notkun áttavita
|
Að loknu grunnnámskeiði er tilvalið að fara á framhaldsnámskeið til þess að öðlast aðeins meiri reynslu í höndum góðs kennara. Til að verða góður kafari er nauðsynlegt að ná sér í mikla reynslu ásamt því að sækja námskeið. Á námskeiðinu er kennt ýmislegt sem nýtist manni vel. Sérstök áhersla er á tæknilega hluti eins og notkun áttavita og val á köfunarstöðun. Þetta forðar mönnum frá löngu og þreytandi sundi á yfirborðinu. Einnig er á öruggan hátt farið í djúpkafanir allt niður að 30 metrum. Að lokum er farið í næturköfun en næturköfun getur verið mjög spennandi og oft meira spennandi en köfun á daginn en þá sjást oft ýmis dýr sem láta ekki sjá sig í dagsljósinu. |
|
| Verð: | kr. 60.000,- |
Pantanir...




