PADI OPEN WATER DIVER
Fyrsta þrepið í köfunarkennslu, farið er yfir öll grunnatriði sem þarf að kunna til að kafa. Kennsla er bæði verkleg og bókleg.
| Verklegt: |
Eitt skipti í sundlaug og fjórar til fimm kafanir í sjó eða vatn. Farið yfir undirstöðuatriði í meðferð og notkun búnaðar þ.m.t. þurrbúnings. |
| Bóklegt: | Fyrirlestur, bókarlestur og köfunarmyndband. Í lokin er tekið skriflegt próf og gefið út alþjóðlegt skírteini sem veitir nauðsynleg réttindi til köfunar niður á 18 metra dýpi. |
|
Nauðsynlegt námskeið fyrir þá sem vilja getað kafað erlendis. PADI OPEN WATER DIVER skírteini veitir handhafa þess réttindi sem þekkt eru um allan heim. Þeir sem hafa slík réttindi geta fengið leigðan búnað til köfunar hvar sem er í heiminum þegar þeir eru að ferðast. Talsvert er um að fólk lærir köfun hjá SCUBA ICELAND til að geta notið þess að kafa erlendis. |
|
| Verð: | kr. 80.000,- |
Einnig innfalið:
- Námsbækur til eignar
- Leiga á búnaði
- Aðgangur að sundlaug
- Alþjóðlegt skírteini, sem veitir réttindi til að kafa niður á 18 metra.
- Alþjóðlegt skírteini í þurrköfun (Dry suit Diver speciality). Aukakostnaður 3.000 kr.




