STRÝTAN
Hverastrýturnar eru í Eyjafirði um 1800 metra undan Víkurskarði. Staðsetningin er 65°49.73 N og 18°06.69 V. Úr strýtunni streymir heitt, ferskt og steinefnaríkt vatn. Steinefnin falla út þegar þau blandast köldum sjónum í kring. Í tímanna rás hafa strýturnar því byggst upp og stækkað. Fyrstu strýturnar fundust fyrst við Galapagoseyjar árið 1977 og hafa nokkrar fundist síðan. En það sem gerir íslensku strýturnar einstakar á heimsvísu eru að þær eru á grunnsævi og ekki nóg með það, heldur eru þær einnig í köfunarfæri. Þetta gerir það að verkum að auðvelt er að rannsaka þær, og þarf því ekki að kasta til miklum fjármunum í langa leiðangra. Því er haldið fram meðal sportkafara að þetta sé heimsins stærsti neðansjávarhver sem kafarar geti heimsótt og eitt af fimm merkilegustu köfunarsvæðum heimsins. Þetta gerir köfun í Strýtuna að einstakri upplifun.
Til að kafa í Strýtuna er nauðsynlegt að vera ADVANCED OPEN WATER kafari þar sem dýpið getur orðið allt að 75 metrar, jafnhátt Hallgrímskirkju. Ekki þarf sérstakt leyfi til að kafa að Strýtunni. Einnig er búið að finna nokkur önnur strýtusvæði í Eyjafirðinum á grynnra dýpi. Þórarinn, leiðsögumaður við skólann þekkir svæðin mjög vel.
SKÚTAN
ATH! FÁ ÞARF SÉRTAKT LEYFI HAFNARYFIRVALDA Á AKUREYRI TIL AÐ FÁÐ KAFA Í SKÚTUNA.
Skútan liggur um 70-100 metra fyrir utan Eimskipabryggjuna á Akureyri. Lítil bauja er sjáanleg þegar staðið er á bryggjunni og ef synt er að þessari bauju þá liggur spotti frá henni niður að flaki skútunnar. Spottinn endar við miðja skútuna. Skyggni getur verið ágætt eftir að verður hefur verið gott í einhverja daga. Skyggnið getur hinsvegar orðið lítið sem ekkert ef vindur eykst og öldurót en einnig vegna leysinga og sanddæluskipa. Skútan er ein af skemmtilegri köfunarstöðum við landið og vel þess virði að heimsækja ef reynsla og réttindi eru í samræmi við kröfur staðarins. Botndýpi er um 27 metrar og er því um djúpköfun að ræða.
Til að kafa þarna þarf Advanced Open Water – Auðvelt er fyrir vana kafara að fara inn í flakið en mikilvægt er að fara varlega eins og ávallt þegar ekki er möguleiki á beinni ferð upp. Innviði skútunnar eru engin enda var hún bara notuð til flutninga og því engar vistaverur um borð.



